Vegna viðhalds gæti vefverslunin verið hæg milli kl. 18:30 og 22:00 í kvöld. Biðjumst velvirðingar á því.
Danska vörumerkið Södahl býður upp á mikið úrval af fallegum textílvörum fyrir heimilið, svo sem rúmföt, borðdúka, viskastykki, handklæði, púða, teppi og fleira. Tískustraumar og sjálfbærni fara saman hönd í hönd hjá Södahl, en flestar þeirra vörur eru Oeko-Tex® vottaðar ásamt því sem allar barnavörur eru með hina vistvænu GOTS vottun.